Terms of service
Viðskiptaskilmálar
Vinsamlega lestu vandlega viðskiptaskilmála maxxipaws.is áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að klára kaup í gegnum vefverslun þá staðfestir þú viðskiptaskilmálana okkar.
Greiðslufyrirkomulag
Hægt er að greiða með greiðslukortum. Við áskiljum okkur rétt til að hafna greiðslum ef upp koma greiðsluvandamál, til dæmis ef greitt er með stolnu korti.
Afhending vöru
Við pökkum sendingum frá vefverslun á lager okkar í Reykjavík.
Hægt er að fá sent með Dropp, en afhendingartími getur tekið 2-3 virka daga.
Allar sendingar fyrir landsbyggðina eru sendar með Dropp. Við reynum að koma öllum sendingum út sem fyrst. Afhendingartími getur verið 2-4 virka daga.
Sendingarkostnaður er reiknaður í greiðsluferlinu og bætist við áður en gengið er frá greiðslu.
Skilmálar Dropp gilda um afhendingar á þeirra vegum.
Skilaréttur
Skilafrestur er 15 dagar gegn kvittun. Ef viðskiptavinur vill skila vöru þá ber honum að hafa samband við maxxipaws@maxxipaws.is eins fljótt og auðið er.
Endurgreiðsla
Óski viðskiptavinur eftir því þá endurgreiðum við vöruna að fullu. Við viljum ekki að viðskiptavinir okkar sitji uppi með háa inneignarnótu.
Sé vara ekki til þegar pöntun er tekin saman þá áskiljum við okkur rétt á að endurgreiða vöruna.
HundaAkademíunni & 4 hundar slf er sölu og dreifingaraðili fyrir maxxipaws.is
Skemmuvegur 40, 200 Kópavogur
kt. 5103251840
Vsknr: 156288
Símanúmer: 6442000/ 6981254