Privacy policy
Persónuverndarstefna Maxxipaws.is
Síðast uppfært: 18. júní 2025
Við hjá Maxxipaws leggjum mikla áherslu á öryggi og friðhelgi viðskiptavina okkar. Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvernig við söfnum, notum, geymum og verndum persónuupplýsingar sem þú gefur upp þegar þú heimsækir og notar vefsíðu okkar, maxxipaws.is.
1. Hvaða upplýsingar söfnum við?
Við gætum safnað eftirfarandi upplýsingum:
-
Nafni og tengiliðaupplýsingum (s.s. netfangi, heimilisfangi, símanúmeri)
-
Upplýsingum sem tengjast pöntunum og greiðslum (t.d. greiðslumáti, pöntunarsaga)
-
Vefnotkun (t.d. IP-tala, vafrakökur (cookies), vefhegðun á síðunni)
Við söfnum eingöngu þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita og bæta þjónustu okkar.
2. Hvernig notum við upplýsingarnar?
Við notum persónuupplýsingar til eftirfarandi:
-
Til að afgreiða pantanir og senda vörur
-
Til að hafa samband við viðskiptavini vegna pöntunar eða þjónustu
-
Til að bæta upplifun á síðunni og þróa þjónustu okkar áfram
-
Í markaðslegum tilgangi, ef þú hefur gefið samþykki fyrir því
3. Vafrakökur (Cookies)
Við notum vafrakökur til að greina notkun á síðunni, bæta virkni hennar og veita persónulega upplifun. Þú getur stjórnað notkun vafrakaka í stillingum vafrans þíns.
4. Geymsla og öryggi gagna
Við gætum persónuupplýsinga þinna með öruggum hætti og fylgjum gildandi lögum um persónuvernd, þar á meðal lögum nr. 90/2018 og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).
5. Þriðju aðilar
Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðju aðilum nema það sé nauðsynlegt til að:
-
Klára pöntun (t.d. sendingarfyrirtæki, greiðslugáttir)
-
Uppfylla lagaskyldur
-
Ef þú hefur veitt okkur skýrt samþykki
6. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
-
Fá aðgang að þínum eigin persónuupplýsingum
-
Krefjast leiðréttingar eða eyðingar á upplýsingum
-
Draga samþykki þitt til baka hvenær sem er
-
Kæra vinnslu persónuupplýsinga til Persónuverndar
Hafðu samband við okkur ef þú vilt nýta þessi réttindi.
7. Hafðu samband
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt nýta réttindi þín geturðu haft samband við okkur:
Maxxipaws.is
Netfang: maxxipaws@maxxipaws.is
Sími: 6981254
Heimilisfang: Skriðustekkur 14, 109 Reykjavík
Vinsamlega athugaðu að þessi stefna getur tekið breytingum. Við mælum með að þú skoðir hana reglulega til að vera upplýst/ur um hvernig við vinnum með þín gögn.